Um okkur

Bakgrunnur og fagleg þekking sálfræðinga Sálstofunnar er lykillinn að gæðum og heildarsýn þjónustunnar.

Á Sálstofunni sinna sálfræðingar jöfnum höndum meðferðarvinnu, ráðgjöf, greiningum, fræðslu og námskeiðum. Meðferðartímar er aðlagaðir að þörfum hvers og eins og byggja á gagnreyndum aðferðum þ.e. aðferðum sem sýnt hefur verið fram á að gagnist best við ólíkum vanda á mismunandi aldursbilum, svo sem Hugrænni atferlismeðferð (HAM), atferlismótun, EMDR, núvitund og samkennd. Áhersla er á samvinnu við börn, ungmenni, foreldra og nánasta umhverfi.

Fyrir utan áralanga reynslu í meðferðarvinnu hafa sálfræðingar Sálstofunnar víðtæka reynslu í starfi fyrir sérfræðiþjónustu leik- og grunnskóla. Sú reynsla fólst meðal annars í greiningum, ráðgjöf til foreldra og skóla, námskeiðshaldi, fyrirlestrum og ýmiskonar þróunarvinnu. Sem dæmi má nefna utanumhald verkefna eins og Jákvæður stuðningur við hegðun í skólum (SW-PBS), Skólaforðun og Snemmtæk íhlutun.  Sem dæmi um námskeið má nefna Klókir krakkar, PMT-O foreldrafærni, Fjörkálfar, Snillingarnir, Námskeið fyrir foreldra barna með ADHD og Mér líður eins og ég hugsa. Á Sálstofunni er rík áhersla lögð á að sálfræðingar sæki reglulega endurmenntun og handleiðslu.

Sálstofan er í samstarfi við stofnanir eins og sálfræðideild Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og CUCARD í Bandaríkjunum (The Columbia University Clinic for Anxiety and Related Disorders) og fagaðila svo sem þroskaþjálfa, sérkennara, geðlækna og fjölskylduráðgjafa. Allir sálfræðingar Sálstofunnar eru virkir félagar í Sálfræðingafélagi Íslands og vinna eftir siðareglum Sálfræðingafélags Íslands.

Bakgrunnur og fagleg þekking sálfræðinga Sálstofunnar er lykillinn að gæðum og  heildarsýn þjónustunnar.